Kvos varð til 1.janúar 2006 sem móðurfélag prentsmiðjunnar Odda, Gutenberg, Kassagerðarinnar og fleiri fyrirtækja á Íslandi og erlendis. Kvos er eignarhalds- og fjárfestingafélag í prentiðnaði og skyldum rekstri.
Markmið Kvosar er að auka arðsemi og samhæfni dótturfélaga og leita fleiri tækifæra á sérsviði félagsins, innanlands sem utan.Saga Kvosar hófst með stofnun Prentsmiðjunnar Odda hf. 9. október 1943 en innan samstæðunnar urðu svo síðar fyrirtæki sem stofnuð voru fyrr eins og Gutenberg frá 1904. Sameining Odda, Gutenberg og Kassagerðarinnar 1.október 2008 skapar öflugasta prentfyrirtæki á Íslandi með yfir 100 ára reynslu.
Kvos átti einnig eitt öflugasta og framsæknasta prentfyrirtæki í Suðaustur-Evrópu, Infopress Group frá 2006 – 2010. Á þeim tíma jukust umsvif þess mikið og m.a. var stofnsett ný prentsmiðja í Ungverjalandi. Ákveðið var að selja Infopress Group í janúar 2010. Við hjá Kvos erum stolt af því að hafa tekið þátt í uppbyggingu þessa öfluga fyrirtækis í austur Evrópu.
Vöxtur Kvosar hefur verið ör á undanförnum árum og hefur viðgangur fyrirtækisins verið efldur með kaupum á íslenskum og erlendum fyrirtækjum í skyldum rekstri og samþættingu starfseminnar.
Segja má að eftir söluna á IPG sé Kvos aftur orðið íslenskt framleiðslufyrirtæki með sölustarfsemi í Bandaríkjunum og í Færeyjum auk þess að reka prentsmiðju í Póllandi.
|